Thursday, June 05, 2003

Skyldi þetta blogg fara inn á Netið? Það lítur út fyrir að ég hafi ekki verið iðin við bloggið undanfarið. Sumpart rétt - ég hef verið upptekin af verkefni sem ég tók að mér að vinna og ljúka fyrir mánaðarmót. Það hafðist með mikilli vinnu, miklu álagi og litlum svefni. Inn á milli reyndi ég árangurslaust að blogga og lagfæra verkefnin mín og ljúka lokaverkefninu. Ekkert af því sem ég skrifaði á bloggið fór inn - sem betur fer á ég sumt af því í word skjali, annað var skrifað í stundarbræði þegar allt var mér mótdrægt. (Eins gott að það fór ekki inn.) Það var mér líka til ama að síður Norðurlandaráðs virkuðu ekki í nokkra daga svo ég fór að gera annað lokaverkefni um gönguferðir um borgina. (Vitið þið hvað það eru mörg útlistaverk hér í borginni? Alveg glás - en því miður eru allt of mörg þeirra ómerkt.) Sem betur fer komst tenging Norðurlandaráðs í lag og nú á ég eitt og hálft lokaverkefni. Í augnablikinu er ég með of lítið svæði svo það er ekki pláss fyrir lokaverkefnið um norræna samvinnu. Samt er það bara pínulítið en ég er með áform um að byggja það áfram og nota í kennslu í áfanga. Sem betur fer er gott fólk með mér hér á námskeiðinu sem veit við hverja maður á að tala við til að kippa í spotta (eða ýta á takka) og fá stærra svæði hjá Ísmennt.
Staðbundna lotan í gær hjá Láru var góð að mínu mati. Hún hélt sig við efnið, það eru nýmæli miðað við hvað gert hefur verið í öðrum kúrsum. Ég er líka sammála því sem kom fram í gær um að staðbundnar lotur hafi takmarkað gildi. Því miður hafa þær verið heldur ómarkvissar hingað til.
Ég ætla að fara að grenja út stærra svæði og glíma við að koma lokaverkefninu á vefinn. Það er komin tími til að kveðja þetta blogg og þakka ykkur öllum fyrir samveruna. Það er búið að vera frábært að kynnast svona góðum samnemendum og ganga í gegn um súrt og sætt með ykkur. Án ykkar hefði ég ekki lifað af.

Saturday, May 17, 2003

Nú er önnur myndin um Guðföðurinn að byrja svo bloggið verður ekki langt. Þessa mynd ætla ég að sjá, ég sá hana fyrir löngu síðan en er búin að gleyma henni. Ég er búin að sitja við lokaverkefnið í allan dag og þetta mjakast mjög hægt áfram. Sumar vefsíðurnar sem ég þarf að nota eru mjög þungar. Það tók meir en 10 mínútur að opna vefsíðu Norrænu ráðherranefndarinnar og næstum annað eins að fletta á milli. Vesen. Þetta á allt að vera mjög einfalt í sniðum en eins og þið vitið þá er hið einfalda svo erfitt. En nú ætla ég að njóta kvikmyndarinnar, mér finnst svo gaman að sjá bíomyndir. Mér er sagt að ég sé kvikmyndafíkill með vondan smekk!

Friday, May 16, 2003

Það er alltaf svo skemmtilegt að bíða eftir að þessi síða birtist á blogginu hjá mér. Ég veit aldrei hvort letrið hér fyrir neðan ritunardálkinn er læsilegt eða bara fullt af óskiljanlegum táknum. Í gær var allt í lagi en núna eru bara kassar og hinir og þessir bókstafir ýmist feitletraðir eða ekki og stöku orð læsileg. Það þýðir að ég get ekki sett inn tengingu - reynslan hefur kennt mér það - svo núna ætla er ég ekki að hafa fyrir því, tengingin kemur ekki til með að virka. Góð afsökun!
Loks "faldt femören" og ég fattaði út á hvað lokaverkefnið á að ganga. Ég er búin að vera að vesenast með lokaverkefni sem ég ætlaði að tengja öðrum verkefnum en vandinn var sá að þá þurfti ég að gera gagnvirkar síður og slíkt kann ég ekki. En í nótt þegar ég lá andvaka fór að rofa til í kollinum á mér, þegar hugsunin var orðin sæmilega skýr sofnaði ég og vaknaði með óljósa hugmynd til að vinna eftir. Ég ætla að taka fyrir Norræna samvinnu - eða þannig. Svo sátum við Gerður fyrri part dags og fórum yfir viðmið og gátlista af vefnum frá Þuríði. Við það varð hugsunin afskaplega frjó en mér tókst samt ekki að gera neitt vitrænt í verkefninu. Þess í stað fór ég að skoða gömul verkefni um skipulag námskeiðs á Neti og lagfærði útlit og framsetningu á áfangalýsingunni í kvikmyndaáfanganum mínum. Ég er búin að vera í allt kvöld að breyta “lúkkinu” meðan ég horfði með öðru auganu á “The Godfather” sem ég hef séð margoft. (Frábær mynd!) Núna er framsetningin á áfanganum mun skárri hjá mér af því ég leitaði mér að nothæfri fyrirmynd og svo tengdi ég og setti á Netið og þá fór allt í flækju. Ekkert virkaði, réttu síðurnar birtust ekki -í besta falli einhverjar aðrar síður. Ég kann ekki að tengja! En nú er kominn tími til að hætta þessu rausi og vona að tengingarlausnin birtist mér í draumi. Morgundagurinn verður helgaður Norrænni samvinnu og það er vel við hæfi því 17. maí er þjóðhátíðardagur Norðmanna

Thursday, May 15, 2003

Ég er búin að vera að lesa blogg og allir eru svo duglegir og jákvæðir en ég er öll í mínus með lokaverkefnið, það er jafn óburðugt sem fyrr. En veðrið var gott og mér fannst rosalega gaman að hitta gamla kollega í dag þegar ég þurfti að fara upp í FB. Ég er búin að heimsækja svo marga skóla í vetur að ég fer að geta gert vísindalega úttekt á kennarastofu kaffi. Hvernig það er að styrkleika, hvernig það er borið fram, bollarnir í sumum skólum eru merktir eigendum sínum. Svo er misjafnt úr hverju fantarnir eru, glerjuðum leir eða gleri. Mér sýnist að bollar með undirskálum séu ekki notaðir lengur á kennarastofum. Í einum skóla var mér bent á að þar væri boðið upp á tvenns konar kaffi - önnur kannan var fyrir alvöru kaffineytendur. Já, kaffið í þeirri könnu fær hæstu einkunn, ég fékk mér eina "sneið" af því.
Núna er ég að drepa tímann, hef ekki þrek til að takast á við verkefnin, hvort heldur það eru skólaverkefni eða heimilisstörf. Drengurinn er í prófum og við foreldrarnir höfum verið að hjálpa honum. Ég er búin að lofa því að vera ekki að nöldra en mikið rosalega bjóðum við börnunum okkar lélegar kennslubækur og verkefni. Mér finnst sorglegt að sjá að á svokallaðri "tölvuöld" virðast kennslubækur endurprentaðar gagnrýnislaust án þess að lagfæra atriði sem eru úr sér gengin eða villur.
Svo fékk ég tölvupóst frá Láru - ég var alveg búin að gleyma því að ég hafði skráð mig í kúrs hjá henni. Hún lofaði að kúrsinn ætti að vera skemmtilegur. Mér finnst það vera göfugt markmið. Fleiri áfangar eiga að hafa það sem aðalmarkmið að vera skemmtilegir. Það var yfirlýst stefna í kvikmyndaáfanganum mínum sem ég kenndi í fyrravetur að námið ætti að vera "en nydelse". Makalaust hvað maður lærir miklu meir og betur þegar það er gaman.

Monday, May 12, 2003

Hvað þýðir "FTP error occurred"? Þetta kemur þegar ég reyni að setja ákveðnar myndir inn. Við náum ekki nema hluta myndanna þegar við flettum upp á síðunum. Í barnaskap mínum hélt ég að e.t.v. væru of margar myndir á síðunni og reyndi að setja e-s konar framhaldssíðu upp með þeim myndum sem koma ekki upp. En nú kemur bara "An FTP error occurred" og ég er engu nær. Getur einhver upplýst mig?
Að öðru leyti er ég í hvíld frá verkefnavinnu. Ég er búin með öll verkefnin nema lokaverkefnið það verður tengt metacognition og sjálfsmati nemenda og á að tengjast hinum verkefnunum. Hvernig það tekst er annað mál.

Wednesday, May 07, 2003

Klukkan á blogginu er vitlaus. Það er 16:48 (4:48 ef maður notar ekki "military hours") en ekki 6:48 PM. Það er meginlandstími í Evrópu og ég miðaði bara við þann tíma um síðustu helgi. Nú vil ég fá íslenskan tíma - líka á bloggið.
Eftir hressandi göngutúr er e.t.v. ráð að huga að verkefnum og bloggi. Ég var svo stolt af mér í gær þegar ég var búin að búa til heila síðu af myndum og tengja þær við heimasíðuna mína til bráðabirgða. Svo kemur í ljós að þeir sem skoða síðuna úti í bæ fá bara hluta myndanna upp stundum kemur bara innrammað X. Hvernig getur það staðist þegar allar myndirnar eru eins settar inn, eru í réttri möppu og opnast allar hjá mér. Getur einhver útskýrt þetta? Hvernig er hægt að lagfæra svona? Get ég lagfært þetta þegar allt virðist vera í lagi í Dreamweaver hjá mér?
Svo veit ég ekki heldur hvernig á að setja mynd í word-formi inn á netið. Hvernig gerir maður það? Ég á ljósmynd sem ég hef skannað og hún er vistuð í word formi. Hvernig get ég notað hana?
Ég er að bjástra við að gera fjölvalsspurningar í Hot-Potatoes og kerfið vill bara leyfa mér að gera þrjár spurningar svo vilja þeir skráningu og lykilorð. Ég er búin að gera nokkrum sinnum þrjár spurningar. Þetta er pirrandi, það er svo langt síðan ég hef fiktað í Hot-Potatoes að ég man ekkert. Ég bara fékk forritið í skólanum - fullkomlega löglega - til að setja inn á mína tölvu. Svo þarf auðvitað að tengja þetta við vefsíður og það er víst ekki á færi allra. En getur einhver svarað mér því af hverju ég get ekki gert ótakmarkaðan fjölda af fjölvalsspurningum í Hot-Potatoes?
Getur einhver leyst þessi vandamál mín?
P.S. Bloggið er bjagað og ólæsilegt en áðan þegar ég opnaði tölvuna án þess að skrifa nokkuð á bloggið var letrið í lagi. Og af hverju var dagsetningin vitlaus í gærkvöldi þegar ég setti inn á Bloggið? Ég er hætt að velta því fyrir mér hvers vegna ég losna ekki við auglýsinguna. Hún vill ekki fara og mér þykir hún bara sæt!

Tuesday, May 06, 2003

Af hverju er dagsetningin í blogginu vitlaus? Það er ekki kominn 7. maí ennþá!
5.5.03

Jæja, þá tekur hversdagslífið við aftur eftir skemmtanir og lúxuslíf í Brussel um helgina. Ég ætlaði að blogga í Brussel en fann ekkert athvarf til þess. Ekkert netkaffihús varð á vegi mínum (eiginmanni mínum til mikillar ánægju!)
Ferðin var frábær – borgin og umhverfið yndislegt. Ég hafði reyndar komið til Brussel áður en þegar maður er í fylgd með þeim sem eru gjörkunnugir staðháttum þá verður allt miklu skemmtilegra. Við vorum í veislum á hverju kvöldi og borðuðum á veitingastöðum þar sem Belgar borða en ekki bara túristarnir. En við vorum líka í guðdómlegri veislu í heimahúsi og á laugardaginn fórum við í dagsferð til Tervuren sem er fallegur lítill bær með skógi og skrúðgarði skammt frá Brussel. Þar fórum við í hressandi heilsubótargöngu og enduðum á þorpskránni. Á laugardagskvöldið var flott ljósasýning með tónlist á Grand Place i Brussel. Tónlistin var sett saman úr mörgum tónverkum, það var byrjað á 1812 forleiknum og líka endað á honum með fallbyssuskotum og látum. Þetta var rosalega flott. Við bjuggum á frábæru hóteli í miðborginni í hliðargötu við Grand Place. Er hægt að hugsa sér það betra?
Ég ætla að reyna að setja myndirnar strax inn í tölvuna og á netið fyrst og fremst til að göngufélagarnir geti séð þær. Við vorum öll meir og minna í kubbaleik með e-a tölvumyndavélakubba og vorum “picture plaque”.
Þótt ferðin hafi verið í alla staði frábært var ósköp notalegt að koma heim í nótt. Við flugum frá Amsterdam og inn í næturbirtuna yfir Íslandi. Þegar flugvélin tók að lækka flugið og við fórum yfir Grindavík held ég bara að ég hafi séð Kristínu Mogensen sitja við tölvuna sína og keppast við.
En mér er víst ekki til setunnar boðið, vefsíður krefjast endurvinnslu og lokaverkefnið...... þar er allt í steik. EN – fyrst ætla ég að reyna að gera eitthvað við þessar stafrænu myndir sem ég tók í ferðinni.
6.5. Og það tókst. Það er myndasíða í tengslum við index síðuna mína ef þið viljið sjá hvað það var gaman hjá okkur. En það var ekki auðvelt að gera þessa síðu og velja myndir. Þetta tók langan tíma, svo keyrði ég litlu fjölskylduna mína, son, tengdadóttur og barnabörnin út á Keflavíkurflugvöll. Nú sofa þau vært í Kaupmannahöfn og fara á morgun til Hamborgar. Ég get ekki sett tenginguna við síðuna inn sennilega af því bloggið er svo bjagað. Skítt með það þeir sem hafa áhuga geta fundið slóðina.